![]() |
|||
Nafn: Örvar Þór Kristjánsson Gælunafn: burn2000, The Calf Town: Njardvik Menntun: já Hjúskaparstaða: nei Atvinna: innflutningur hja Varnarlidinu Áhugamál: Ferðalög, sport, kvenréttindi og friður á jörðu. Hæð: 192 cm Þyngd: 98,7 kg Skóstærð 45 ½ Helstu kostir: segi alltaf satt Gallar: lýg soldið mikið Börn: nei en fýla þau alveg Draumaprinsessa: hlý og kát..útlit skiptir engu Sími, gsm: 847-7392 Gæludýr: nei Drekkur: kemur fyrir Reykir: nei Besta kvikmynd: Bogaleikarnir 1997 Tónlist: Sinatra er bestur Enski: Liverpool NBA: Er víst mella í þeim málum Skoski: Celtic Kvennahandboltinn: FH Karfan heima: UMF…G Karfan I þýzkalandi: Liðið hans Loga Skywalker Handboltinn I Þýzkalandi: Bad Swarteau Fleyg setning: Ich bin ein Juden |
þriðjudagur, ágúst 10, 2004
Gróðurhúsaáhrifin eru kjarabót
Það er hitabylgja í gangi, óvanaleg hitamolla leikur um landsmenn öllum til ómældrar gleði. Hitastig í kring um 20-25 gráður og jafnvel 30 stig til innsveita. Þetta er í einu orði sagt æðislegt og öll vikan á að vera svona. Ég er sveittari en andskotinn þessa stundina en mér líður þó vel. Í dag skora ég á ykkur börnin góð að fá ykkur ís og njóta hitans… vona bara að hrörleg gamalmenni hrökkvi ekki uppaf í mollunni. Þið þarna gamla fólk, drekka nóg af vatni og sitja í skugganum. Ef þetta eru gróðurhúsaáhrifin þá vil ég meira af þeim takk fyrir túkall. Þessi einmuna blíða má ná alveg framyfir Lightnight (Ljósanótt) það yrði snilldin ein. Jæja ætla að "vippa" mér frá tölvunni og kíkja í óspillta náttúruna og njóta veðurblíðunnar. PS: Veðurfréttakellingin á RUV, þessi sem opnar aldrei munninn þegar hun talar (með tennurnar límdar saman) brosti víst sínu breiðasta í gær og opnaði munninn smá... þrefalt húrra. Eru ekki annars allir í stuði?? | miðvikudagur, ágúst 04, 2004Þó líði ár og öld… Þjóðhátíð 2004 er nú afstaðin og er óhætt að segja að fjörugt hafi verið í Dalnum. Kallinn mætti ásamt fríðu föruneyti, Matti (Gollum), Eyþór (Frodo) og Kiddi (Sam) voru algjörir fyrirmyndar herbergisfélagar. Hroturnar í Kidda eru reyndar svakalegar en það má venjast öllu en eðal drengur með hjartað á réttum stað.. Eyþór fór þarna á sína fyrstu þjóðhátíð og stóð rækilega fyrir sínu en maður helgarinnar var Marteinn, kallinn dansaði eins og trylltur væri og yfirferðin á honum var svakaleg… já hann tölti þá ófáa fermetrana. Veðrið lék við okkur, það komu einstaka skúrir og sunnan 25 metrar á sekúndu en alvöru sukkarar láta slíkt ekki stöðva sig. Friðrik Erlendur, Jóna Hemm, Sævar Ga Ga, Bára, JAS, Helgi Magg að ógleymdum foreldrum Friðriks (höfðingjar) veittu manni góðan félagsskap ásamt óteljandi af þjóðhátíðargestum sem ég hreinlega man ekki eftir að hafa hitt. Mikið var sungið og trallað í hvíta tjaldinu hjá Frikka Stef og áfengismagnið sem vætti kverkar manna er talið í tonnum. Mannflóran var fjölbreytt, þarna voru allar stærðir og gerðir af fólk af öllum þjóðernum. Allt fór nú vel fram, menn drukku reyndar stíft enda er heilsan í dag vægast sagt ömurleg. Þetta er samt allt þess virði. Topp 5 atriði helgarinnar: 1: Brekkusöngurinn: Árni Johns kom sá og sigraði…… 2: Danshreyfingarnar hjá Matta á litla sviðinu…. Kallinn hefur bætt sig gríðarlega. 3: 22 ja ára gömul stúlka úr feministafélaginu sem tjáði mér að hún væri hrein mey. Hún fær prik fyrir það. Hún neitaði samt sanngjörnu tilboði mínu um að Matti myndi afmeyja hana á Stóra sviðinu. 4: Bolirnir sem Kiddi Ól lét útbúa…til í kaaallllinnn. Þeir vöktu sko lukku. 5: Egó… þeir voru asskoti góðir, edrú en góðir. Henti kannski inn meira af frásögnum þegar heilsan leyfir… | miðvikudagur, júlí 28, 2004
Karlmaður beittur misrétti
Eldri hjón sem fóru saman á Ball um daginn rifust eins og hundur og köttur fyrir utan ballstaðinn. Ástæðan var sú að eiginmaðurinn splæsti á félaga sinn einum tvöföldum koníak, 2600 krónur. Þetta fannst konunni óþarfa bruðl og húðskammaði kallinn sem varð frekar “pirraður” út í kellinguna en lét hana þó vaða yfir sig fyrir framan múg og margmenni. Þegar þau komu svo út sprakk kallinn og lét kellinguna heyra það!! Skoðum aðeins málavexti betur. Þetta eru hjón sem fara út að skemmta sér c.a 2-4 á ári enda runnin af léttasta skeiði. Nú kom upp ærið tilefni til þess að skemmta sér einhvurra hluta vegna. Auðvitað varð að hafa sig til og hér er niðurbrot kostnaðar þeirra hjóna: Konan: Ný föt/skór: 20 000 kr Hand/fótsnyrting 4000 kr Klipping og litun 6000 kr Nudd 3500 kr Rauðvín og 2 Vodka Ice 2600 kr Út að borða með vinkonunum í hádeginu til að plana djamm: 5000 kr 2 x ljósatímar 1200 kr Nýr maskari, og fleira spassl: 3000 kr Miði á ball: 1500 kr Eyðsla á bar: 1600 kr Samtals: 48.400 kr * Kallinn: Vodkaflaska: 3700 kr Eydsla a bar 10.000 kr Miði á ball 1500 Samtals: 14.700 * Já og kellingin skammaði kallinn fyrir “BRUÐL” á barnum………….. er þetta ekki dæmalaust fyrir ykkur kvenþjóðina. Annars eruð þið alveg ágætar bara..;) * Svona gróflega áætlaðar tölur en samkvæmt rannsóknum frekar nærri lagi sko… | mánudagur, júlí 26, 2004
Rok og rigning en það verður drukkið og trallað..hvert ætla menn að fara???
Jæja magnaðasta helgi ársins er að renna upp og fólk verður á ferð og flugi. Hvert menn fara er æði misjafnt, t.d ætlar kallinn til Eyja það er klappað og klárt. Fyrsta veður-spáin fyrir helgina gerir ráð fyrir smá regni en það hefur sjaldan komið í veg fyrir taumlausa gleði í Vestmannaeyjum. Ekki nema þjóðhátíð 1995 þegar við Sævar Ga Ga vorum rændir öllu steini léttara. Eina sem við héldum eftir voru ullarnærbuxurnar sem við fórum í og hvítir hlýrabolir. Þá vorum við líka í tjaldi eins og bjálfar en í þetta sinn verður gist á forlátu gistiheimili. Marteinn Ægisson hefur séð til þess að gist verður á 5 stjörnu gæðaheimili með eigin sturtuaðstöðu og Tælensk þjónustustúlka er til taks. Kallinn er orðinn spenntur enda ávallt fjör á þessari skemmtilegustu úthátíð landans. Hvert ætlar fólk annars að fara?? Tel líklegt að Ægir Gunn fari tólfta árið í röð í Galtalæk og að Ásgeir Guðbjartsson fari á Saurlifnað 2004 á Hólmavík. Sævar Ga Ga og Frikki Stef ásamt eiginkonum fara til eyja mér til mikillar gleði. Mér tókst að plata markamaskínu Njarðvíkurliðsins í knattspyrnu til margra ára til Eyja í fyrsta sinn..já Eyþór “skorari” ætlar til Eyja þannig að þið stelpur ættuð að fá eikkvað fyrir ykkar snúð. Annars er hellingur í boði fyrir þá sem fara ekki til Eyja, hér er smá brot af því: Feministahátíð á Skógum: já feminista druslurnar verða með magnaða hátíð. Binna Bolla mætir á svæðið ásamt Brúðubílnum og um kvöldið spila Grýlurnar. Meðferð áfengis og karlmanna er með öllu óheimil. Lessur fá sérstakan afslátt en annars er miðaverð 8500 kr. Gay Dive 2004: Samtökin 78 standa fyrir göngu fram af Látrabjargi fyrir vestan um helgina. Aðgangur ókeypis. Outburn 2004: Útbrunnir og ömurlegir skemmtikraftar standa að þessari hátíð Outburn 2004 sem haldi verður í Grímsey. Bjartmar Guðlaugs, Katla María, Anna Katrín, Bjössi Bolla og Halli og Laddi skemmta almúganum. Verð 250 kall. Slutt 2004: Gamlar vélhjóla, hljómsveita og íþróttadruslur ætla að hittast og rifja upp gamla tíma. Gunna glennta, Anna Almannagjá og fleiri góðar æsa mannskapinn með svæsnum sögum úr bransanum. Allir velkomnir en grúppíur fæddar 1943 og fyrr fá sérstakan afslátt. Verð 3300 kr. váááá það er hellingur að ske ske, um að gera að fara eitthvað.... craZiness | miðvikudagur, júlí 21, 2004
Sorglegt sjónvarpsefni...
Fer að hlaupa í Ræktinni og set á mig headphone-in, stilli á sjónvarpstöðina Popp Tíví. Notalegt að hlusta a lög svona þegar maður er að hlaupa og ekki skemmir fyrir ef eitthvað “eggjandi” myndband er í spilun. Einhverjar fáklæddar drottningar að dilla bossanum fram og til baka, það eykur kraft og hlaupaþolið eykst til muna (aukið blóðstreymi). Nema þegar Kurt Nielsen myndbandið skellur á, þá langar mann oft að hlaupa fram af bjargi. Í gær smellti ég mér á brettið, ákveðinn í að hlaupa í 30-40 mínútur lágmark. Setti mig í stellingar og hið fínasta lag var í gangi á Popp Tívi, tjéllingar og alles. Þetta byrjaði sem sagt allt af fullum krafti. Þegar lagið tók enda, þá kom í ljós að einhver þáttur var í gangi. Nafnlaus þáttur með þeim Önnu Katrínu (falska Idol bitsjið) og Heiðari Austmann. Hvílík og önnur eins leiðindi hef ég ekki upplifað, þessi tvö með þátt saman… drottinn minn dýri hvað sjónvarpsdagskrárgerð hér á landi er sokkin lágt. Þau eru bæði drepleiðinleg, þá er vægt til orða tekið. Ég gjörsamlega átti ekki til orð en horfði til að svala forvitninni. Langaði svo eftir skamma stund að hlaupa inn í sjónvarpið og lúskra á þeim báðum… þau hafa ekki ennþá fundið nafn á þáttinn, ég er með tillögu, skýra þáttinn…. “ólýsanleg leiðindi” eða “tvöfaldur viðbjóður” Nylon þátturinn er hátíð í samanburði við þetta, það er amk hægt að horfa á stelpurnar því þær eru (tvær amk) sætar. ( Mæli samt eindregið með innslagi þeirra í 70 mínútum, Vælon það er argandi snilld ). Anna Katrín er að mínu mati álíka mikið augnakonfekt og rassgatið á Ron Jeremy. Heiðar Austmann fer bara í mínar fínustu, hefur alltaf gert. Allavega þá held ég að þessi þáttur lifi ekki lengi, vil bara ekki trúa því. Lilli api og allir hinir í stundinni okkar eru skransandi illir vegna þessa. Ef strákarnir í 70 mínútum væru ekki að redda Popp Tíví með frábærum þáttum dag eftir dag þá mundi þessi nýji þáttur Önnu og Heiðars setja stöðina á hausinn…..með skömm. Mæli samt með því að þið kíkið á þennan viðbjóð… bara til þess að sjá þetta. En í guðana bænum passið ykkur börnin góð, of mikið áhorf er ávísun á þunglindi og karlmenn muna eiga erfitt með að ná upprisu holdsins... Annars man maður þá daga þegar að Harry Klein,Hunter og Dee Dee McCall ásamt Jessicu Fletcher áttu sjónvarpið... Murder she wrote, klassa þáttagerð. Hver man ekki eftir Seth, feitu löggunni sem hjálpaði Jessicu að leysa málin. Barbapabbi, hvar er hann?? Stiklur.... gargandi fjölskylduvænir þættir. Good old days are over. l8r | mánudagur, júlí 19, 2004
Agalega nett og létt um helgina..…..
Shitturinn titturinn mellan og gamla gæran!! Ég kíkti líka í þetta frábæra innflutningspartý hjá “fagurgalanum” Kidda Ól nú á laugardagskveld. Stemmingin var notaleg og allir í góðu skapi, Kiddi hefur fest kaup á “piparsveinaíbúð dauðans” virkilega fallegur gripur. Það var eins og fyrr segir vel mætt af fólki, fegurðardísir í tonnatali og annað fólk. Playboy modelin voru þarna að spóka sig um og Gunni Ástráðs missti saur á stofugólfið þegar hann sá opnunarstúlku B&B tralla þarna í góðu yfirlæti. Eyþór markamaskína Njarðvíkurliðsins var á svæðinu, hann getur nú skorað í fleira en mörkin og átti ófá marktækifærin um kvöldið…hvort hann hafi sett eitt síðar um kvöldið skal ósagt látið en hann skapaði sér færin! Geir Ólafsson stórsöngvari mætti á svæðið eða var það Marteinn Ægisson?? Þeir bræður eru það keimlíkir að maður er hreinlega ekki viss!! Helgi Hefner var orðinn sauðdrukkinn fyrir miðnætti og fór hreinlega á kostum eins og honum einum er lagið. Kvenkynið virðist laðast að kappanum og átti hann í talsverðum erfiðleikum að velja úr hópi fagurra fljóða. Þó sá maður skemmtilega takta hjá kappanum sem er einkar tungulipur.. þá á ég ekki við að hann sé góður í sleik, enda er ég ekki hommi. Eftir villt og tryllt partýstand var haldið niður í bæ, Hverfisbarinn varð fyrir valinu og þar var stemmingin góð. Sumir peyjanna blönduðu óspart geði við hitt kynið og voru menn ansi kræfir… eftir dynjandi danspor og hvíumlíkt sprell þá var haldið á Esso í eina væna pulsu með karftöflusallati..oft fengið hana betri!… Marteinn Geir Ólafsson keyrði í þetta skiptið og kann ég honum þakkir fyrir þótt ég kjósi að hafa kvikindið sauðdrukkið. Þakka Kidda fyrir eðal fínt party… vona að klósettbustinn og tannkremið sem við gáfum þér komi að góðum notum. PS: í blíðunni um helgina skellti ég mér oft og sund…..mín skilaboð til miðaldra kvenna í sundbolum “rakið á ykkur kuntuna (allavega snyrta bikini line), ég þoli ekki að sjá þykk hárin gæjast þarna út í tíma og ótíma..frekar subbulegt!! Blómaskeið þýskra klámmynda er liðinn, snyrtið pjásuna amk því þetta er ekki töff lengur. Þegar fullvaxnar górillur eru að spranga þarna um í skóglendinu þá er ástandið orðið slæmt! Ég fékk bara nóg þegar að Hallormsstaðarskógur settist klofvega á móti mér í pottinum...það var sjón sem ég vona að ekkert ykkar þurfi að sjá..... Annað var það ekki á þessum líka sólríka sumardegi…have fun kids.. over and out.. | föstudagur, júlí 16, 2004
Eldri borgarar, tryggið ykkur betri kjör.
“Á Hrafnistu er gaman þar slefa allir saman”…. Þessi söngur dundi á mér þegar ég heimsótti háaldraða en fallega ömmu mína sl. helgi. Get sko sagt ykkur það að hún amma mín er lang sprækust þarna á Hrafnistu. Auðvitað er fólkið þarna misjafnlega gamalt og hresst, sumir alveg skransandi hressir en aðrir væru bettur settir bankandi í kistulok. Hún amma var með skemmtilega auglýsingu inni hjá sér frá einni ferðaskrifstofunni. Já hvílikir öðlingar, þeir voru að bjóða henni 4.000 kr afslátt ef hún bókaði sér ferð til kanarí sem fyrst. Sú gamla sem er að verða níræð fær þennan líka “veglega” afslátt. Þetta er hálf dapurt, er ekki hægt að bjóða þessum eldri borgurum betri kjör? Þetta fólk hefur lagt sitt af mörkum til þjóðfélagsins og þrátt fyrir að það kúki og pissi út um allt í dag þá var þetta einu sinni duglegt fólk. Mér finnst að það eigi að bjóða þessum greyjum ( þeim sem hafa heilsu til ) amk eina fríja sólarferð á ári, allavega virkilega ódýra þá! Annars er amma ekkert agalega spennt að fara, andleg heilsa er góð en hún meiddi sig á mjöðm og er að ná sér blessunin. Hún er sem sagt ekki ferðafær eins og hún orðaði það svo skemmtilega og á ekki nema einn thong. Hinsvegar er það vinur hennar, Gunnar gamli Holström sem býr við hliðina sem langar alveg ógurlega að fara. Kallinn er 87 ára og hefur aldrei farið út fyrir landsins steina. Jújú fór einhverntíman á Sturlungaöld til Westman Island en það þykir ekkert merkilegt í dag. Gunnar gamli er ekki vel fjáður, hann sagði mér að þetta væri frekar dýrt og honum vantar ferðafélaga ( “Helst ýturvaxna snót” sagði sá gamli við mig ). Svona gæji á að fá eina fríja ferð svona áður en hann kveður okkur. Honum langar á nektarströnd sagði hann mér, ég glotti en sá hann svo fyrir mér kviknakinn og mér varð flökurt. Hinsvegar sá ég glampann í augunum á gamla muggnum, hann var eins og smástelpa sem var nýbúin að upplifa kynsvall í Galtalæk. Hann ætti skilið að fá síðustu standpínuna á nektarströnd á kanarí, hvílíkt moment fyrir þann gamla. ( Hard on gæti kostað hann lífið á þessuma aldri, en hann færi þá glaður ) Amma mín hefur blessunarlega kynnst utanlandsferðum í gegn um árin, það er frábært. Hún reyndar tilkynnti mér það í síma nú í vikunni að Gunnar gamli hafi fundið sér ferðafélaga og bókað sér ferð til Kanarí!! Ég brosti út að eyrum þegar ég heyrði þetta, enda verður fjör hjá þeim gamla þegar hann kemst út. Amma vonar bara að hann “tóri” fram að ferð, hann lifir víst nefnilega svo hátt ( mætir í gömlu dansana 2var í viku ). Hvað sem því líður þá er kallinn kominn með farseðil í höndina og áætluð brottför er í nóvember. Góða ferð gamli minn ef þú getur lesið þetta. | |
||
|
Copyright © 2004 Muggz.
|